Spurt & Svarað

Hér fyrir neðan eru þær spurningar sem við fáum oft og svör við þeim!


Hvað er Óskaskrín?

Óskaskrín er gjafaaskja sem inniheldur eftirfarandi:

  • Myndskreytta handbók með kynningu á þeim upplifunum sem í boði eru um allt land fyrir þig til að velja úr. Í henni eru allar nauðsynlegar upplýsingar til að geta pantað hjá þjónustuaðilum þá upplifun sem þú kýst.
  • Gjafakort sem er innleysanlegt hjá einum af þjónustuaðilunum í Óskaskríninu þínu.

 

Hvernig nota ég Óskaskrín?

Þú getur gefið Óskaskrín sem gjöf eða keypt fyrir þig sjálfa/n. Hægt er að velja milli átta mismunandi skrína en í boði er fjölbreytt afþreying, dekur og ýmiskonar upplifun um allt land. Eigandi Óskaskríns velur sér eina upplifun úr handbókinni, pantar hjá þjónustuaðila, mætir og nýtur.

 

Er fyrningardagsetning á Óskaskríni?

Óskaskrín gildir til 31.1.2013 en gildisdagsetning kemur fram á gjafakortunum.

 

Hvaða daga get ég leyst út Óskaskrín gjafakortið?

Þú getur notað gjafakortið alla daga vikunnar, þar á meðal um helgar, en það fer allt eftir þjónustu og framboði þjónustuaðila. Hver og einn þjónustuaðili veitir upplýsingar um hvenær hægt er að nota gjafakortið.

 

Eru einhver tímabil sem ég get ekki notað gjafakortið?

Það fer eftir opnunartíma þjónustuaðila, svo við mælum með að þú kynnir þér opnunartíma þeirra.

 

Hversu mörgum pökkum get ég valið úr?

Þú velur eina upplifun úr átta mismunandi Óskaskrínum:

17 valkostir í Fjör

16  valkostir í Dekurstund

16  valkostir í Kúltúr

15  valkostir í Gourmet

17  valkostir í Dekur

20  valkostir í Adrenalín

16  valkostir í Rómantík

10  valkostir í Lúxus

Óskaskrín fyrir fyrirtæki sem getur innihaldið eitt af ofangreindum skrínum.

 

Er þjónustan sem þið bjóðið í Óskaskrín ódýrari heldur en ef ég kaupi einfaldlega beint af þjónustuaðilunum sjálfum? Ef ég hefði t.d samband við einhverja snyrtistofuna sem þið hafið samning við og athugaði með sams konar meðferð, myndi hún vera dýrari en inni í skríninu?

Við höfum lagt okkur fram við að allar upplifanirnar hjá okkur séu á sama eða lægra verði í gegnum okkur heldur en beint hjá þjónustuaðilum okkar til viðbótar við það auka virði að upplifunin kemur frá okkur í fallegri gjafaöskju sem hluti af stærri hóp valmöguleika til hagsbóta fyrir þann sem fær gjöfina frá þér :)

Hinsvegar getur það gerst að tímabundin tilboð séu í gangi á einhverjum tíma hjá þjónustuaðilum sem gætu þá verið lægri en í gegnum Óskaskrínin okkar, en það eru þá bara tilfallandi dæmi. 

 

Eru einhver aukaleg gjöld?

Hvert Óskaskrín hefur að geyma upplýsingar um hverja upplifun og hvað er innifalið í pakkanum þínum. Allir skattar eru innifaldir. Í Óskaskríni er ekki innifalinn kostnaður við flutning eða aukakostnaður sem ekki er getið í handbókinni. Kjósir þú að bæta við upplifunina eða þjónustuna í samráði við þjónustuaðila sem ekki er innifalið í Óskaskríni þarftu að greiða fyrir þann kostnað aukalega.

 

Eru einhverjir sérstakir skilmálar og/eða skilyrði til að taka þátt í upplifunum í Óskaskrínunum?

Í flestum tilvikum ekki en við mælum þó með því að þú spyrjir þjónustuaðilann þegar þú pantar ef þú ert í einhverjum vafa. Það fer eftir upplifuninni, en þú getur verið beðin/n um að koma með ákveðna hluti með þér (til dæmis sundföt, hlý föt, góða skó o.s.frv.). Gildu ökuskírteini þarf að framvísa í upplifun sem felur í sér notkun ökutækja líkt og frá greinir í skilmálum þjónustuveitenda í handbókinni.

 

Get ég boðið vinum eða fjölskyldu að njóta Óskaskríns með mér?

Í handbókinni er tekið fram fyrir hversu marga hver upplifun gildir. Við mælum með að þú spyrjir þjónustuaðila ef þú hefur einhverjar spurningar varðandi fleiri þátttakendur eða auka þjónustu en það er alfarið í höndum þjónustuaðila.

 

Mig langar að gefa Óskaskrín sem gjöf. Hvar get ég keypt það?

  • Verslunum Eymundsson um allt land. Upplýsingar um verslanir má finna á:  http://www.eymundsson.is/eymundsson/verslanir-eymundsson/
  • Hagkaup í Skefunni, Smáralind, Kringlunni og Garðatorgi.
  • Hans Petersen, Ármúla 38, 108 Reykjavík.
  • Blómahönnun, Listhúsinu Engjateig.
  • Blómabúðin Dalía í Glæsibæ.
  • Þú getur keypt það á vefnum okkar www.oskaskrin.is.
  • Þú getur sent tölvupóst á info@oskaskrin.is.
  • Þú getur einnig hringt í síma 577 5600.

 

Er hægt að kaupa Óskaskrín á vefsíðunni ykkar áhættulaust?

Allar greiðslur á vefsíðunni okkar fara í gegnum örugga vefgátt Valitor.  Kreditkortanúmer þitt og/eða persónulegar upplýsingar um þig verða okkur aldrei aðgengilegar. Þú getur verið viss um að allar greiðslur á netinu fyrir Óskaskrín séu áhættulausar.

 

Hvað tekur langan tíma að fá Óskaskrín afhent til mín?

Allar pantanir sem berast fyrir klukkan 14:00 á virkum dögum fara í póst samdægurs og eru að jafnaði afhentar 1-3 virkum dögum síðar.

 

Er hægt að fá Óskaskrín sent beint til viðkomandi sem mig langar til að gefa það?

Já. Einnig er hægt að fá það innpakkaðað sem gjöf og með persónulegri kveðju ef óskað er, gegn gjaldi. Íslandspóstur sér um alla póstflutninga og gilda tryggingaskilmálar þeirra um ábyrgð á sendingum.

 

Ég er nú þegar búin að panta hjá þjónustuaðila til að innleysa Óskaskrín, en kemst ekki. Hvað á ég að gera?

Talaðu við þjónustuaðilann eins fljótt og auðið er til að finna nýjan tíma. Einnig er gott að spyrjast fyrir um kjör þjónustuaðila og aðstæður á þeim tíma sem bókað er.

 

Eru valkostirnir í Dekurskrínunum einnig fyrir karlmenn?

Já, að sjálfsögðu eru bæði Dekur og Dekurstund fyrir bæði karlmenn og konur :)

 

Er hægt að nota upphæð gjafakortsins upp í aðra vöru hjá þjónustuaðilum?

Það er ekki ætlast til að verðmæti gjafakortsins sé notað upp í aðra vöru hjá þjónustuaðilum en við mælum með að þú hafir samband við þjónustuaðila þar sem það er undir þeim komið hvort upphæðin geti gengið upp í aðra vöru.

 

Kosta Óskaskrínin alltaf það sama, fyrir hvert mismunandi skrín? (kostar Gourmet alltaf 14.900, sama hvaða veitingastaður er valinn?)

Já! Hvert Óskaskrín hefur fast verð og því getur þú valið eina upplifun úr handbókinni, hver sem hún er.

 

Get ég uppfært Óskaskrín sem ég á yfir í dýrara Óskaskrín?

Já, þú getur uppfært Óskaskrín. Við skipti á vöru þarf hún að vera í upprunalegu ástandi í óopnuðum umbúðum. Þú getur skipt Óskaskríninu eða uppfært í verslunum Eymundsson eða með því að koma með það til okkar í Skógarhlíð 12, 105 Reykjavík.


Hvað má ég velja margar upplifanir?

Þú velur þér eina upplifun úr handbókinni í Óskaskríninu þínu.

 

Af hverju bara eina?

Hvert Óskaskrín (gjafakort) er að andvirði einnar upplifunar í handbókinni. Þegar þú svo notar gjafakortið hjá þjónustuaðila þá afhendir þú það í upphafi heimsóknar.

 

Hver er upphæðin inni á gjafakortinu? Hvert er peningavirðið?

Það er engin upphæð inni á gjafakortinu heldur er kortið virði Óskaskrínsins sem keypt var og gildir það fyrir eina upplifun úr handbókinni hjá þeim þjónustuaðila sem þú velur þér.

 

Ég las á sölustað að gjafakortin væru ekki virkjuð fyrr en að morgni næsta virka dags eftir sölu, hvað þýðir það?

 

Hjá flestum söluaðilum eru Óskaskrínin virkjuð að morgni næsta virka dags eftir sölu. Það þýðir að ekki er hægt að nota gjafakortið samdægurs eða um sömu helgi og Óskaskrín er keypt nema sérstaklega sé óskað eftir því. Ef á að nota gjafakortin samdægurs er að sjálfsögðu hægt að hafa samband við starfsfólk Óskaskríns á skrifstofutíma í síma 577 5600 eða með því að senda póst á info@oskaskrin.is.